Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Peltor 3M FL60 WS5-Serie Bedienungsanleitung Seite 53

Ws adapter
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
IS
í samræmi við 15. kafla FCC-reglna. Lágmarkskröfurnar eru gerðar með það fyrir augum að veita
eðlilega vernd gegn hættulegum truflunum í uppsetningu í íbúðahverfi. Tækið framleiðir, notar og
getur gefið frá sér útvarpsbylgjuorku og getur valdið hættulegum truflunum á fjarskiptum, sé það
ekki uppsett og notað í samræmi við leiðbeiningar. Það er hins vegar engin trygging fyrir því að
truflanir geti ekki átt sér stað í ákveðinni uppsetningu. Valdi tæki þetta hættulegum truflunum sem
hægt er að fá staðfestar með því að slökkva og kveikja á því, er notandinn hvattur til þess að
lagfæra truflunina með einni eða fleirum eftirfarandi aðgerða:
• Að snúa móttökuloftnetinu eða snúa því.
• Að lengja bilið á milli tækjanna sem áhrif hafa hvort á annað.
• Leitaðu til tæknideildar 3M.
CAN ICES-3 (B)/NMB-3(B)
ÁBYRGÐ OG TAKMÖRKUÐ SKAÐABÓTASKYLDA
ÁBYRGÐ: Komi í ljós að einhver vara frá 3M Personal Safety Division sé gölluð hvað efnivið
eða handbragð varðar og ekki í samræmi við ótvíræða ábyrgð varðandi sérstakan tilgang, er
eina skuldbinding 3M og úrbót þér til handa sú að 3M velur sjálft um að gera við, skipta um eða
endurgreiða þér kaupverð viðkomandi hluta eða vöru, að því tilskyldu að þú hafir tilkynnt í tíma
um vandamálið og að staðfest sé að varan hafi verið geymd, henni viðhaldið og hún notuð í
samræmi við skriflegar leiðbeiningar 3M. ÁBYRGÐ ÞESSI EINSKORÐAST VIÐ OG KEMUR
Í STAÐINN FYRIR ALLA YFIRLÝSTA ÁBYRGÐ EÐA ÁBYRGÐ SEM GEFIN ER Í SKYN UM
SELJANLEIKA, GAGNSEMI Í ÁKVEÐNUM TILGANGI EÐA AÐRA ÁBYRGÐ UM GÆÐI EÐA
ÁBYRGÐ SEM SPRETTUR AF SÖLU, VENJU EÐA NOTKUN Í STARFI, NEMA HVAÐ VARÐAR
TILKALL OG VEGNA BROTA GEGN EINKALEYFI. 3M ber samkvæmt ábyrgð þessari engar
skyldur vegna neinnar vöru sem ekki skilar ætluðum árangri vegna ófullnægjandi eða rangrar
geymslu, meðferðar eða viðhalds, þegar ekki er farið eftir leiðbeiningum með vörunni eða þegar
henni er breytt eða hún skemmd af slysni eða vegna vanrækslu eða rangrar notkunar.
TAKMÖRKUN Á ÁBYRGÐ: 3M SKAL AÐ ENGU LEYTI BERA ÁBYRGÐ Á NEINU BEINU,
ÓBEINU, SÉRSTÖKU, TILFALLANDI EÐA AFLEIDDU TJÓNI EÐA SKEMMDUM (ÞAR MEÐ
TALIÐ HAGNAÐARTAP) SEM SPRETTUR AF VÖRU ÞESSARI, BURTSÉÐ FRÁ ÞVÍ HVAÐA
LAGAKENNINGUM ER BEITT, NEMA ÞAR SEM ÞAÐ ER LÖGUM SAMKVÆMT BANNAÐ.
ÚRRÆÐI EINSKORÐAST VIÐ ÞAÐ SEM HÉR ER GREINT FRÁ.
ENGAR BREYTINGAR: Ekki skal gera neinar breytingar á tæki þessu nema með skriflegu
samþykki 3M fyrirtækisins. Óheimilar breytingar gætu ógilt ábyrgð og heimild notanda til þess að
nota tækið.
3M ber enga ábyrgð af neinu tagi, hvort beina né óbeina (þar með talið, en ekki takmarkað við
tap á hagnaði, viðskiptum og/eða viðskiptavild) sem sprettur af því að treysta á einhverjar þær
upplýsingar sem hér eru gefnar af 3M. Notandinn ber ábyrgð á því að meta hve vel vörurnar
henta fyrir þá notkun sem áformuð er. Ekkert í yfirlýsingu þessari skal metið svo að það útiloki
eða takmarki ábyrgð 3M vegna andláts eða líkamlegs tjóns sem sprettur af því að hunsa hana.
57

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis