Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

3M 5000 Serie Bedienungsanleitung Seite 25

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für 5000 Serie:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 9
i
Lesið þessar leiðbeiningar samhliða viðeigandi
notendaleiðbeiningunum með 3M™ síu og 3M™
andlitshlíf þar sem finna má upplýsingar um:
• samþykktar samsetningar 3M™ sía,
• aukahluti
KERFISLÝSING
Þessar síur uppfylla kröfur í „EN 143:2000,
agnasía/agnasíur" og þær ætti að nota með
samþykktri 3M™ andlitshlíf sem saman mynda
síunartæki fyrir öndunarhlíf sem ver gegn tilteknum
aðskotaefnum í lofti, bæði í föstu og fljótandi formi.
Gögnum um afkastagetu síu er lýst í tækniforskrift.
Að auki má nota agnasíur úr 3M™ 5000-vörulínunni
með lofttegunda- og gufusíum úr 3M™
6000-vörulínunni. Ef nota á þær með síum úr 3M™
6000 vörulínunni verður að nota 3M™ 501
síufestingu. Hægt er að nota síur úr 5000 vörulínunni
einar og sér, með 3M 501 síufestingu og 3M™ 603
síukerfi.
Á mynd 1 er að finna leyfðar síusamsetningar.
^ VIÐVARANIR OG
TAKMARKANIR
^ VIÐVÖRUN Rétt val, þjálfun, notkun og viðeigandi
viðhald eru allt nauðsynlegir þættir til að varan geti
varið notandann fyrir tilteknum aðskotaefnum í lofti. Ef
öllum notkunarleiðbeiningum þessarar öndunarhlífar
er ekki fylgt og/eða ef hún er ekki höfð rétt á í heild
sinni allan váhrifatímann getur það haft alvarleg áhrif
á heilsufar notandans og leitt til alvarlegra eða
lífshættulegra sjúkdóma eða varanlegrar fötlunar.
Gangið ávallt úr skugga um að varan í heild sinni:
– henti notkun hverju sinni,
– passi vel,
– sé notuð allan váhrifatímann, og
– sé endurnýjuð eftir þörfum.
Til að varan henti og sé notuð rétt skal fylgja
staðbundnum reglugerðum, fara eftir öllum
upplýsingum sem með henni fylgja eða hafa
samband við öryggissérfræðing/fulltrúa 3M
(upplýsingar um tengiliði á staðnum).
Notið þetta öndunarhlífakerfi eingöngu í samræmi við
allar leiðbeiningar:
• • sem er að finna í þessum bæklingi,
• • sem fylgja öðrum íhlutum kerfisins.
• Notið ekki þar sem styrkleiki er meiri en tilgreint er í
tækniforskriftinni.
• Notið ekki sem öndunarhlíf gagnvart aðskotaefnum í
lofti/styrkleika sem er óþekktur eða umsvifalaust
hættulegur lífi eða heilsu (IDLH).
• Notið ekki í andrúmslofti þar sem súrefnisinnihald er
minna en 19,5%. (Skilgreining frá 3M. Í hverju landi
fyrir sig kunna að vera í gildi aðrar takmarkanir hvað
varðar súrefnisskort. Leitið ráða ef vafi leikur á
málum).
• Notist aðeins af þjálfuðu og hæfu starfsfólki.
• Yfirgefið mengaða svæðið umsvifalaust ef:
a) einhver hluti kerfisins skemmist.
b) loftstreymi í andlitshlífina minnkar eða hættir alveg,
c) erfitt verður að anda eða vart verður við aukið
öndunarviðnám,
d) vart verður við svima eða önnur óþægindi,
e) vart verður við lykt eða bragð af aðskotaefnum eða
ertingu,
Þessar vörur innihalda ekki íhluti sem gerðir eru úr
náttúrulegu gúmmílatexi.
Innlendar reglugerðir kunna að kveða á um tilteknar
takmarkanir hvað varðar notkun sía, eftir síuflokkun
og þeirri andlitshlíf sem notuð er. Notkun hvers kyns
samsetninga á 3M™ andlitshlífum / síum ætti að vera
í samræmi við gildandi heilsu– og
öryggisverndarstaðla, viðmiðunartöflur fyrir öndun og í
samræmi við tilmæli frá heilbrigðisfulltrúa
vinnustaðarins.
Skipta þarf reglulega um síur. Tíðni skipta fer eftir
notkunartíma og styrkleika aðskotaefnanna.
Hægt er að hringja í hjálparlínu 3M vegna heilsu- og
öryggismála (upplýsingar um tengiliði á staðnum).
Skipta verður um agnasíur þegar öndunarviðnám
verður óviðunandi.
Ekki má nota bensín, klórborin fituhreinsiefni (svo
sem tríklóretýlen), lífræn leysiefni eða hreinsiefni sem
innihalda slípiefni til að hreinsa neina hluta
búnaðarins.
ATHUGIÐ Lesið allar leiðbeiningar um notkun og
geymið til notkunar síðar meir.
LEIÐBEININGAR UM
SAMSETNINGU
1 Setjið síuna í 501festinguna þannig að prentaða
hliðin snúi að lofttegunda- og gufusíunni (mynd 2).
Gætið þess að sían liggi flöt. 2 Setjið 501festinguna á
lofttegunda- og gufusíuna – hún ætti að festast
tryggilega. Sían á að fara alveg yfir framhlið
lofttegunda- og gufusíunnar. (Mynd 3). 3 Ef 3M 5000
vörulínan er notuð ein og sér skal festa 603 á
andlitshlífina, setja 3M 5000 síuna á 603 og klemma
501 á 603 síukerfið. Gangið úr skugga um að prentuð
hlið síunnar snúi að 603 síukerfinu. 4 Fjarlægið til að
skipta um síu með því að lyfta FLIPANUM eins og
sýnt er (mynd 4). Þessar síur koma í pörum með
sömu flokkun og af sömu gerð og þær verður að setja
í, nota og skipta út á sama tíma (eins og sýnt er).
Endingartími síu er ólíkur og hann fer eftir magni
aðskotaefna, notkunarhlutfalli, váhrifatíma o.s.frv.
Skipta verður um agnasíur þegar öndunarviðnám
verður óviðunandi. Förgun íhluta ætti að vera í
samræmi við staðbundnar reglugerðir um heilsu– og
öryggisvernd og umhverfisvernd.
24

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

591159255935

Inhaltsverzeichnis