Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

HERKULES SHZ 250 Bedienungsanleitung Seite 67

Seilhebezug
Vorschau ausblenden Andere Handbücher für SHZ 250:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Anleitung_SHZ_125_1000_SPK7:_
Vélvirkur flokkur er M1.
Notkunartími rafmagnstalíunnar er um það bil
8000 snúningar (fyrir utan slithluti). Þegar að
vírinn hefur snúist 8000 snúninga verður þar af
leiðandi að yfirfara vélræna hluti þessa tækis og
skipta slitnum hlutum út.
Lesið og skiljið notandaleiðbeiningarnar áður en
að tækið er tekið til notkunar.
Gangið úr skugga um að notandi þessa tækis viti
hvernig það virkar og hvernig á að vinna með
þetta tæki.
Notandi þessa tækis verður ávallt að vinna eftir
notandaleiðbeiningunum.
Rafmagnstalían er ekki ætluð til standslausrar
notkunar. Tilætluð notkun þessa tækis er: Halda
verður tilætluðum hvíldartímum án tillits til hitunar
á tæki.
Afl tækis breytist ekki við staðsetningu hlass.
5.1 Tæki tekið úr umbúðum
Eftir að pakkning hefur verið opnuð verður að athuga
rammann, stálvírinn, krókinn og öryggisútbúnað og
mögulega flutningaskaða.
5.2 Samsetning (mynd 5)
Rafmagnstalían er útbúin 2 festingum (1) sem festa
verður við þar til gerðan bita. Stærð bitans verður að
passa við festingarnar (1) og verður að geta borið
tvöfalda burðargetur rafmagnstalíunnar. Við mælum
með að hafa samband við fagaðila.
Herða verður allar rær og alla bolta vel.
Fyrir notkun verður fagaðili að fara yfir
uppsetninguna, bitann og festingu hans.
5.3 Unnið með vindu (myndir 6-9)
Rafmagnstalían er útbúin vírhjóli (15) og aukakróki
(16). Við rétta notkun er hægt að lyfta tvöfaldri þyngd.
Festið vírhjólið (15) og aukakrókinn (16) eins og sýnt
er á myndum 6-8. Krókurinn sem áfestur er (8) verður
að hanga í festigatinu (2) (mynd 9).
Nú er hlassinu lyft með tvöföldum vír og því hægt að
lyfta tvöfaldri þyngd.
6. Notkun
6.1 Tilmæli til notkunar
1. Fjarlægið límbandið af keflinu (3) fyrir fyrstu
notkun.
2. Gildi A-hávaða á notandastað er lægra en 70dB
(mælt eftir EN ISO 11201).
3. Spenna: 230V ± 10%, 50Hz ± 1%.
4. Rafmagnstalíuna má nota við eðlilegan
umhverfishita eða frá 0 °C til 40°C, loftrakinn
verður að vera undir 85%. Hæð yfir sjávarmáli má
að hámarki vera 1000m.
16.10.2008
16:07 Uhr
Seite 67
5. Hiti þar sem tækið er geymt má vera á milli -25 °C
og 55 °C. Hæsti hiti má alls ekki fara yfir 70 °C.
6. Notandi tækisins ætti að lyfta hlassinu með
lágmarks mögulegum hraða. Vírinn ætti að vera
strekktur þegar að hlassinu er lyft.
7. Mótor (14) rafmagnstalíunnar er útbúinn
hitanema. Þess vegna getur slokknað á mótor
(14) tækisins á meðan það er í notkun. Hann fer
sjálfkrafa aftur í gang eftir að hann hefur náð að
kólna nægilega mikið.
8. Rafmagnstalían er ekki útbúin álagsöryggi. Þess
vegna ætti ekki að halda áfram að lyfta hlassi
þegar að hitarofinn hefur slökkt á tækinu. Í þeim
tilvikum er tækið undir of miklu álagi.
9. Látið ekki hlass hanga óvaktað án þess að tryggja
það vandlega.
10. Gangið úr skugga um að rafrásin sem tækið er
tengt við sé útbúið 10 A öryggi.
11. Notið rofann (4/5) ekki að staðaldri til að slökkva á
tækinu. Þessi rofi er ætlaður til öryggis.
12. Áður en vinna er hafin verður að ganga úr skugga
um að vírinn (6) sé rétt þræddur á keflið (3) og að
millibilið milli vinda sé minna en þvermál vírs
(mynd 3)
13. Gangið úr skugga um hlassið hangi örugglega og
tryggt í króknum (8) eða aukakróknum (16).
Haldið ávallt góðri fjarlægð frá vírnum (6) og
hlassinu.
6.2 Notkun (mynd 9)
Athugið hvort að neyðarrofinn (9) sé virkur. Snúið
rauða rofanum réttsælis til að losa um hann.
Þrýstið á þrýstirofann ▲ (10) til að lyfta.
Þrýstið á þrýstirofann▼ (10) til að láta hlassið
síga.
Öryggisrofi fyrir stöðvara (5): Þegar að hámarks
hæð er náð, þrýstir stöðvarinn (7) rofanum (5)
uppávið. Þannig slokknar á tækinu og ekki er
hægt að lyfta lengra.
Rofi fyrir hámarks vírlengd (4): Þegar að hlassið
er komið í neðstu mögulegu stöðu, verður
útsláttarrofi gerður virkur sem kemur í veg fyrir að
vírnum verði rúllað lengra út. Þessi öryggisrofi
verður einnig gerður virkur ef að tæið er notað í
ranga átt (krókur hreyfist í ranga átt við áttina sem
sýnd er á stjórnborði).
Ef að neyðarrofinn (9) er gerður virkur stöðvast
rafmagnstalían.
Ef neyðarástand kemur upp þrýstið þá tafarlaust á
neyðarrofann (9) til þess að stöðva
rafmagnstalíuna. Ekki er hægt að nota né stjórna
rafmagnstalíunni á meðan að neyðarrofinn er
virkur.
IS
67

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis