Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

HERKULES HES 150 T Originalbetriebsanleitung Seite 61

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Anleitung_HES_150_T_SPK7:_
koma í veg fyrir mögulegan skaða á fólki og tækjum.
1. Vinna eða viðgerðir á hlið rafmagnstengingar
tækisins, t.d. á rafmagnsleiðslum, innstungum,
klóm osfrv. mega eingöngu vera framkvæmdar af
fagfólki með þar til gerð réttindi. Þetta gildir
sérstaklega ef að aukalegar rafmagnsleiðslur eru
tengdar við rafsuðutækið.
2. Ef slys eiga sér stað, takið þá tækið tafarlaust úr
sambandi við strau.
3. Ef að skammtengingar eiga sér stað verður að
taka tækið strax úr sambandi og hafa samband
við fagmann til að fara yfir tækið.
4. Athugið að það séu ávallt góðar tengingar á
suðuköplum.
5. Notið ávallt einangraða vettlinga á meðan að
soðið er. Þeir hlífa fyrir rafmagnsspennu
(hringrásarspennu rafsuðutækisins), skaðlegri
geislun (hita og útfjólublárri geislun) og glóandi
málmi og ögnum.
6. Notið fastann og góðan skóbúnað, skórnir ættu
einnig að vera rakaheldir. Lágir skór eru ekki við
hæfi þar sem að glóandi málmur eða agnir geta
dottið ofan í skóna og brennt húðina.
7. Notið réttan klæðnað, ekki nota fatnað sem
gerður er úr gerviefnum.
8. Horfið aldrei í suðulogann með berum augum,
notið ávallt suðuhjálm með leyfðum glerjum
samkvæmt DIN. Suðugeislinn gefur ekki bara frá
sér ljós og hita sem að getur blindað eða brennt
heldur einnig útfjólubláa geisla. Ef að augum er
ekki hlíft nægilega vel, getur þessi ósýnilega
útfjólubláa geislun valdið sjáanlegum og mjög
sársaukafullum hornhúðarskaða í augum sem
fyrst er að finna eftir nokkrar klukkustundir eftir að
horft var í geislann. Auk þess valda útfjólubláir
geislar sólbruna á húð sem að ekki er nægilega
vel hlíft.
9. Auk þess verður fólk í nánd við suðuna að vera
uppfrætt um hættuna og verður það fólk einnig að
hlífa sér fyrir þessari geislun og hættum. Ef
nauðsin er verður að setja upp hlífðarveggi.
10. Á meðan að soðið er, sérstaklega í litlu rými
verður ávallt að sjá til þess að nægjanlegt ferskt
loft sé til staðar þar sem að reykur og gas verður
til staðar.
11. Í ílát sem að hafa innihaldið gas, eldsneyti, olíur
eða þess háttar efni, má alls ekki sjóða, ekki
heldur þótt að ílátið hafi verið tæmt fyrir löngum
tíma þar sem að leifarnar geta valdið
sprengingum.
12. Ef að soðið er í eldfimu rími eða þar sem að
sprengihætta er til staðar gilda sérstakar
öryggisráðstafanir.
13. Suður sem að eru undir miklu álagi og þær suður
sem eiga að fullyrða öryggisskilyrðum, mega
einungis vera framkvæmdar af fagfólki með þar til
18.01.2011
9:36 Uhr
Seite 61
gerð réttindi og nám.
Dæmi um það eru:
Þrýstikútar, loftbrautir (t.d. fyrir hlaupakött),
dráttarbeisli og svo framvegis.
14. Tilmæli: Það verður að hafa það í huga þegar að
soðið er í rafmagnstæki eða í vélum að
jarðtenging vélar eða tækis getur skemmst ef að
ekki er rétt að suðunni staðið. Þetta getur átt sér
stað ef að til dæmis jarðtenging suðutækisins er
sett á hús rafsuðutækisins sem tengt er
jarðtengingu rafmagnstækisins sem soðið er í.
Suðuvinna er framkvæmd á tæki sem hefur
jarðtengingu. Það er semsagt mögulegt að sjóða í
tæki eða vél án þess að tengja beint jarðtengingu
rafsuðuvélarinnar. Í þessu tilviki leiðist
straumurinn frá rafsuðutækinu í gegnum
jarðtengingu þess tækis eða þeirrar vélar sem að
soðið er í. Þegar að svo er getur straumur
rafsuðutækisins brætt jarðleiðara vélarinnar eða
þess tækis sem að soðið er í.
15. Öryggi þerrar straumásar sem að notuð er við
rafsuðutækið verða að uppfylla þau skilyrði sem
sett eru (VDE 0100). Það mega þar af leiðandi
samkvæmt þeim skilyrðum einungis vera notaðar
leiðslur með réttu þvermáli leiðara og stærð
öryggis (fyrir öryggisinnstungu hámark 16 ampera
öryggi eða 16 ampera LS-rofi). Rangt öryggi getur
orsakað bruna á leiðurum eða húsnæðisbruna.
Þetta tæki er ekki ætlað til atvinnunota!
Þröng og rök rými
Þegar að unnið er í þröngum, rökum eða heitum
rýmum verður að gæta sérstaklega að því að undirlag
sé mjög vel einangrað, vinnuvettlingar séu úr stífu
leðri eða öðru vel einangrandi efni og að þeir séu
uppháir. Einnig verður öll líkamseinangrun að vera
mjög góð og einangra verður vel líkamann frá gólfi,
veggjum, leiðandi tækjahlutum og þessháttar.
Ef soðið er með lágspennu sem gerð er til að sjóða
þar sem að rafmagnshætta er mikil, eins og t.d. í
þröngum rýmum úr leiðandi veggjum (katlar, rör afl.), í
rökum rýmum (vinnuföt rök), í heitum rýmum (vinnuföt
verða blaut af svita), má spenna tækis ekki vera hærri
en 42 volt (virk spenna). Þess vegna má ekki nota
þetta tæki við þessi skilyrði þar sem að spenna þessa
tækis er hærri.
Hlífðarfatnaður
1. Á meðan að unnið er verður sá sem að sýður að
vera vel varinn á líkama og andliti fyrir geislum og
bruna.
2. Nota verður uppháa rafsuðuvettlinga úr þar til
IS
61

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis