Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Leiðbeiningar Fyrir Notkun Infield Öryggisgleraugna - Essilor Infield Terminator Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis
Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 1
Leiðbeiningar fyrir notkun INFIELD öryggisgleraugna
IS
EN 166:2001
ESB) Reglugerð 2016/425
Framleiðandi:
INFIELD Safety GmbH/ Nordstraße 10a /D-42719 Solingen, Þýskaland
Leyfisveitendur:
• Nr. 1883 / ECS GmbH / Hüttfeldstraße 50 / 73430 Aalen / Þýskaland
• Nr. 0196 / DIN CERTCO GmbH / Alboinstr. 56 / 12103 Berlín/ Þýskaland
• Nr. 0432 / MPA NRW / Marsbruchstrasse 186 / 44287 Dortmund / Þýskaland
• Nr. 0194 / INSPEC International Ltd. / 56 Leslie Hough Way / Salford / Greater Manches-
ter / M6 6AJ / Bretland
Fylgið eftirfarandi við notkun öryggisgleraugna:
• Skoðið gleraugun vel fyrir notkun, til að athuga hvort rispur eða brot séu til staðar. Gallar
geta leitt til lélegra höggvarna eða óskýrrar sýnar.
• Skiptið tafarlaust út gölluðum gleraugum!
• Notið aðeins upprunalega varahluti til viðgerðar.
• Skiptið út gleraugum fyrir 5 ára notkun vegna álags á efnið eftir langvarandi notkun.
• Öryggisgleraugu má aðeins nota fyrir leyfileg notkunarsvið (Tafla 1-3).
• Öryggisgleraugu með stillingarmöguleikum fyrir höfuðlag notanda til að passa sem best.
• Högg agna á mjög miklum hraða á yfirgleraugu og mikil högg á stillanlegu gleraugun gætu
leitt til meiðsla.
• Sérsniðin gleraugu má ekki nota af mismunandi notendum.
• Ekki gera ósamþykktar breytingar á öryggisgleraugunum.
• Geymið gleraugu sem eru ekki í notkun í geymsluboxi.
• Öryggisgleraugu geta valdið ofnæmisviðbrögðum á húð fyrir viðkvæma einstaklinga ef
snerting verður.
• Hreinsa þarf gleraugun vel og athuga breytingar á efni ef þau komast í snertingu við fægi-
lög, leysiefni eða kemísk efni.
• Vörn gegn sýrum og bösum á við þar til vökvarnir ná til öryggisgleraugnanna. Notið ekki
gleraugu eftir snertingu við sýrur eða basa.
• Öryggisgleraugu í sjónflokki1 henta fyrir vinnu í lengri tíma (fullan vinnudag).
• Öryggisgleraugu merkt með „T" má nota við aukið álag og við mjög hátt hitastig (FT, BT).
Öryggisgleraugu án „T" merkis má aðeins nota við herbergishita.
• Litasíur með varnarstigum 5-1.1 til 5-3.1 og 6-1.1 til 6-3.1 tryggja að stefnuljós greinist
og má nota í bílaumferð.
• Litasíur með litblæ yfir 25% henta ekki fyrir vinnu í rökkri eða að næturlagi.
• Miðað við styrkleika ljósgeislunar, eru notaðar logsuðuvarnarsíur (1.7 - 14), UV varnarsíur
(2C-1.2 til 2-5), Innrauðar varnarsíur (4-6 eða 4-7) eða sólarvarnarsíur (5-1.7 til 5-2.5).
• Ennfremur geta verið efna-, hita-, líffræðilegar og eða vélrænar hættur sem skapast á
vinnusvæðum. Verið viss um að nota öryggisgleraugu sem henta aðstæðum (vörn gegn
vökvum, grófum eða fínum ögnum, gasi eða bræddum málmum). Greiningarflokka fyrir
öryggisgleraugu má finna í Töflum 1-3.
Leiðbeiningar fyrir notkun INFIELD öryggisgleraugna
Notkunarsvið / Varnarflokkar / Framleiðsludagsetning
Notkunarsvið, varnarstig og framleiðsludagur eru merkt á hlífðarlinsuna og/eða á innra
byrði, við gagnauga.
Vöruauðkenni á hlífðarlinsum eða við gagnaugu
Auðkenning
Merking
2C - 1,2 *
Varnarstig á síu áhrif / litblær (UV geislun)
GA
Auðkenningarmerki framleiðanda INFIELD
166
Númer á EN 166 staðli
1
Sjónflokkur
S F B or A *
Styrkleiki
T
Styrkleiki við mjög hátt hitastig
3 4 5 8 9 *
Notkunarsvið | Samsetningar mögulegar
K
Rispuvörn
N
Móðuvörn
CE
Gæðamerking
* Valfrjáls, miðast við skírteini eða notkunarsvið
Merking styrkleika
Auðkenning
Merking/ styrkur
enginn
Lágmarksstyrkur
S
Aukinn styrkur
F
Þróttlítið högg (45 m/s)
B
Meðalþungt högg (120 m/s)
A
Þungt högg (190 m/s)
T
Vörn gegn ögnum á mikilli hreyfingu við mjög hátt hitastig
Auðkenning á notkunarsviðum
Auðkenning
Merking/ notkunarsvið
ekkert
Venjuleg notkun
3
Vökvar
4
Grófar agnir
5
Gas og fínar agnir
8
Gallaðir bogar (der)
9
Bráðinn málmur og heitir vökvar
• Öryggisgleraugu fá verndarflokk með lægri styrk ef styrkur umgjarða og öryggislinsa/
gleraugna er ekki sá sami.
• Framleiðsludagur: Greinanlegur (mm/áááá) á öryggislinsu eða við gagnaugu/annar valkos-
tur: Dagsetning og tími á umgjörð.
Geymsla og pökkun
Geymið öryggisgleraugu við herbergishita í upprunalegum umbúðum á dimmum, þurrum
og rykfríum stað.
Hreinsun og sótthreinsun
Þurrhreinsið ekki hlífðarskermana. Notið INFIELD gleraugnasápu eða tært vatn með
uppþvottalegi. Hægt er að sótthreinsa gleraugu með öllum leyfðum sótthreinsiefnum á mar-
kaði. Ekki má nota hreinsiefni sem innihalda alkóhól.
Förgun
Farið eftir reglugerðum viðkomandi ríkis þegar þessari vöru er fargað.
Samþykktaryfirlýsing
Fyrir samþykktaryfirlýsingu viðkomandi vöru, vinsamlegast heimsækið
www.infield-safety.com til að skoða hana og niðurhala
1
2
3
Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Infield 9383 105

Inhaltsverzeichnis