Herunterladen Diese Seite drucken

Whirlpool ARG 104702 Bedienungsanleitung Seite 141

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für ARG 104702:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 39
Hvernig nota á búnaðinn
FYRSTA NOTKUN
Bíðið í a.m.k. tvær klukkustundir eftir uppsetningu áður en tækið er tengt við rafmagn. Tækið fer sjálfkrafa í gang þegar það er
tengt við rafmagn. Tilvalið geymsluhitastig fyrir matvælin er forstillt í verksmiðjunni.
Þegar kveikt hefur verið á tækinu verður að bíða í 4-6 klukkustundir til að náð sé réttu geymsluhitastigi fyrir tæki sem sett hefur
verið venjulegt magn í. Staðsetjið bakteríuvarnar og lykteyðandi síuna í viftuna eins og sýnt er á pakkningu síunnar (ef við á). Ef
hljóðmerkið heyrist þýðir það inngrip hitastigsviðvörunarinnar: Ýtið á hnappinn til að slökkva á hljóðviðvöruninni.
Kæliskápshólf og geymsla matvæla
Kæliskápsrýmið er til að geyma fersk matvæli og drykki. Kæliskápsrýmið afísar sig á fullkomlega sjálfvirkan hátt. Tilfallandi
vatnsdropar innan á afturvegg rýmisins eru merki um sjálfvirka afísingarfasann. Leysingavatnið er leitt með rás í niðurfall og
síðan safnað í ílát, þar sem það gufar upp.
Til athugunar: Umhverfishiti, hversu oft hurðirnar eru opnaðar og staðsetning tækisins geta haft áhrif á innra hitastigið í báðum rýmunum.
Stillið hitastigið eftir þessum þáttum. Við aðstæður þegar raki er mikill getur rakaþétting myndast í kæliskápsrýminu, sérstaklega á
glerhillunum. Í þessu tilfelli er mælt með að loka ílátum með vökva (t.d. pottur með soði), pakka matvælum sem hafa mikið vatnsinnihald
(t.d. grænmeti) og kveikja á viftunni, ef hún er til staðar. Hægt er að fjarlægja allar skúffur, hurðarhillur og aðrar hillur.
Loftræsting
Loftræsting gerir mögulega betri dreifingu hitastigsins innan í rýminu og, þar af leiðandi, betri varðveislu matvælanna og dregur
úr umframraka. Hindrið ekki loftræstisvæðið.
Hvernig geyma á fersk matvæli og drykki
Matvæli sem gefa af sér mikið magn af etýlengasi (epli, apríkósur, perur, ferskjur, lárperur, fíkjur, sveskjur, bláber, melónur,
baunir) ættu alltaf að vera aðskilin frá þeim sem eru viðkvæm fyrir þessu gasi, eins og ávextir, grænmeti og salat, eða pakka þeim
inn til að minnka ekki geymsluþolið; til dæmis skal ekki geyma tómata með kíví ávöxtum eða káli. Geymið ekki matvæli of þétt
saman svo nægileg hringrás lofts verði möguleg. Notið endurvinnanleg ílát úr plasti, málmi, áli og gleri og matarfilmur til að
pakka inn matvælum.
Ef verið er með lítið magn af matvælum til geymslu í kæliskáp er ráðlagt að nota hillurnar fyrir ofan ávaxta- og grænmetisskúffuna
þar sem þetta er kaldasta svæðið í rýminu. Notið alltaf lokuð ílát fyrir vökva og fyrir matvæli sem geta gefið frá sér lykt eða
mengast af flutningi lyktar og bragðefna eða hyljið þau. Til að hindra að flöskur velti um koll skal nota flöskuhaldarann (fáanlegur
á völdum gerðum).
c
3
Skýring
TEMPRAÐ SVÆÐI
Tilvalið til geymslu á suðrænum ávöxtum, dósum, drykkjum, eggjum, sósum,
súrsuðu grænmeti, smjöri, sultu
KALT SVÆÐI
Tilvalið fyrir geymslu osta, mjólkur, daglegs matar, sælkeravara, jógúrts
KALDASTA SVÆÐI
Tilvalið fyrir geymslu á áleggi, eftirréttum, kjöti og fisk
ÁVAXTA- OG GRÆNMETISSKÚFFA
Í gerðum með „0 ° SVÆÐI" HÓLF er „kaldasta svæðið" það sem er áherslumerkt í
**
skýringunni
Leiðbeiningar um notkun & umhirðu

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Art 66102