Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Íslenska; Leiðbeiningar - IKEA RODULF 2270990 Handbuch

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 7
Íslenska
Rafvélrænt hæðarstillanlegt vinnusvæði með snertistýringu til
að stilla hæð.
Börn frá 8 ára aldri og fólk með skerta líkamlega, skynjunar
eða andlega getu, eða skort á reynslu og þekkingu, geta notað
tækið ef viðkomandi hefur verið kennd örugg notkun tækisins
og sagt frá þeim hættum sem geta fylgt tækinu. Börn eiga ekki
að leika sér með tækið.
Börn eiga ekki að sjá um þrif og viðhald nema undir eftirliti.
Ráð og leibeiningar fyrir RODULF
Notaðu tækið aðeins með meðfylgjandi
stýringu.
Hver sem ber ábyrgð á uppsetningu og notkun
þessa borðs eða viðhaldi og viðgerð, ætti að
lesa þessar leiðbeiningar vandlega. Geymdu
leiðbeiningarnar nærri borðinu.
Uppsetningarleiðbeiningar
• Borðið sett saman samkvæmt meðfylgjandi
samsetningarleiðbeiningum.
• Tengdu snúruna úr einum fæti yfir í þann næsta.
• Tengdu rafmagnssnúruna í vegginnstungu.
ATH! Rafmagnssnúran verður að liggja þannig að
hún geti færst til.
• Borðið er nú tilbúið til notkunar.
• Mótorinn stöðvast sjálfkrafa þegar borðið hefur
náð lægstu eða hæstu mögulegu stillingu.
Notkun
• Borðið er aðeins ætlað til notkunar sem
vinnuborð með möguleika á að stilla
vinnuhæðina milli standandi og sitjandi stöðu.
Borðið má aðeins nota innandyra og í þurru
umhverfi (á skrifstofu o.þ.h.).
Ekki má ofhlaða borðið, burðarþol er 80 kg.
Mótorinn má ganga viðstöðulaust í eina mínútu
að hámarki. Eftir það þarf að hvíla mótorinn í
u.þ.b. 9 mínútur áður en má nota hann aftur.
LEIÐBEININGAR
Handvirk endurræsing/fyrsta notkun:
• Endurræstu með því að ýta samtímis á upp og
niður hnappana í að minnsta kosti 8 sekúndur.
Haltu áfram að halda hnöppunum niðri og
skrifborðið færist hægt í lægstu mögulegu stöðu.
Endurræsingu er lokið þegar skrifborðið hefur
stöðvst í lægstu stöðu.
Fylgdu þessum leiðbeiningum þegar þú stillir
hæð skrifborðsins:
1. Gættu þess að ekkert sé fyrir borðinu áður en
hæðin er stillt.
2. Til að hækka eða lækka borðið þarf að þrýsta á
upp eða niður hnappinn, í þeirri röð.
Ýttu á upp hnappinn og haltu honum niðri þar til
æskilegri hæð er náð .
Ýttu á hnappinn niður og haltu honum niðri þar til
æskilegri hæð er náð .
19

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis