Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

ZEKLER 412RDH Gebrauchsanweisung Seite 59

Hearing protection
Vorschau ausblenden Andere Handbücher für 412RDH:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 8
Útvarp (sjá Mynd 3a)
Hljóðmerkið frá hátölurum hlífanna fer að hámarki
upp í 82 dB(A) við eyrað.
Ef hlustað er á útvarp kunna viðvörunarmerki á
vinnustaðnum að heyrast verr.
Á/Af styrkur
– Snúið Radio-takkanum til að kveikja á útvarpinu.
Snúið áfram réttsælis til að hækka styrkinn.
– Ef móttökuskilyrði eru slæm fer útvarpið
sjálfkrafa úr stereó í mónó til að viðhalda hámarks
hljómgæðum.
Tíðni-/rásaveljari (sjá Mynd 3b)
– Snúið FM-takkanum til að velja rás.
– Tíðnisvið útvarpsins er FM 88-108 MHz
Virk hlustun (sjá Mynd 3c)
Heyrnarhlífarnar eru með aðgerð fyrir virka
hlustun. Gangið úr skugga um að aðgerðin virki
áður en hlífarnar eru notaðar. Ef truflun eða bilun
kemur upp kannið þá leiðbeiningar um viðhald og
skipti á rafhlöðum.
– Viðvörun! Hljóðið frá virku stillingunni getur verið
hærra ytra hávaðastig.
– Hljóðmerkið frá hátölurum hlífanna fer að
hámarki upp í 82 dB(A) við eyrað.
Á/Af styrkur
– Snúið "Surround"-takkanum til að kveikja á
virku hljóðnemunum. Snúið réttsælis til að hækka
styrkinn.
Virk hlustun + útvarp (sjá Mynd 3)
– Aðgerðirnar eru með aðskildar styrkstillingar.
Stillið styrkinn eins og óskað er.
Inntak fyrir ytri hljóðmerki (sjá Mynd 4)
Heyrnarhlífarnar eru búnar rafrænu inntaki fyrir
hljóðmerki. Gangið úr skugga um að það virki
áður en hlífarnar eru notaðar. Ef truflun eða bilun
kemur upp kannið þá leiðbeiningar framleiðanda.
– Viðvörun! Tenging við ytri hljóðgjafa getur haft í
för með sér hljóðstyrk yfir leyfilegum mörkum.
– Hámarks leyfilegur hljóðstyrkur er: 263mV
– Hægt er að tengja við talstöðvar, MP3-spilara
og aðra ytri hljóðgjafa í 3,5 mm inntakið.
– Þegar inntakið fyrir ytri hljóðmerki er notað
verður að vera skrúfað frá hljóðstyrknum.
Rafhlöður (sjá Mynd 5)
– Hlífarnar eru með tveimur 1,5 V AA rafhlöðum.
– Aðeins má nota 1,5 V AA NiMH rafhlöður.
– Gangið úr skugga um að pólarnir snúi rétt.
– Ekki má skipta um rafhlöður meðan kveikt er
á tækinu.
– Viðvörun! Virknin getur versnað eftir því
sem hleðslan í rafhlöðunum minnkar. Við
venjulega notkun endast rafhlöðurnar í um 120
klukkustundir.
Varahlutir/fylgihlutir
Hreinlætissett #HK3
– 2 þéttihringir
– 2 dempunarpúðar
– 1 eyrnaskálapúði (aðeins fyrir höfuðspöng)
Veljið rétt hreinlætissett fyrir hlífarnar. Settið á að
endurnýja að minnsta kosti tvisvar á ári.

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

412rd

Inhaltsverzeichnis