BILANALEIT
Ef nuddpotturinn er bilaður skal nota töfluna til að leita bilana og aðgerða.
Hafið samband við 5938@camargue.se ef ekki er hægt að finna orsök
bilunar eða ef ekki er hægt að gera við hana.
1. Vatnsleki rétt undir dælu.
- Kveikt hefur verið á dælunni án þess að vatn væri í pottinum og
sumir hlutar dælunnar hafa brunnið og farið að leka.
- Hægt er að kaupa nýja dælu hjá Camargue eða gera upp þá gömlu.
2. Vatn lekur frá dæluloki.
- Pakkningin er of þurr.
- Lokið er sprungið.
- Skrúfurnar á lokinu eru ekki rétt hertar eins og á að gera við bílfelgur
eða herða í kross. Ímyndum okkur að lokið sé klukkuskífa - fyrst er
skrúfuð skrúfan kl. 12, síðan skrúfan kl. 6, kl. 3 og kl. 9 o.s.frv. Þetta
skiptir máli!
- Pantið nýja pakkningu og nýtt lok.
3. Dælan virkar ekki.
- Tryggið að vatnið nái yfir vatnsstútana (sjá lið 19 í handbók)
- Bræðivörin hafa brunnið yfir. Kannið bræðivörin á pottinum og í
rafmagnsuppsetningunni.
- Kannið rafmagnið - spennan þarf að vera 220/230 volt búnaðurinn
verður að taka nægilega mörg amper.
- Hafið samband við 5938@camargue.se
4. Blásari virkar ekki.
- Bræðivörin hafa brunnið yfir. Kannið bræðivörin á pottinum og kannið
bræðivör í rafkerfinu.
- Kannið rafmagnið - spennan er 220/230 volt búnaðurinn tekur
nægilega mörg amper.
- Hafið samband við 5938@camargue.se
5. Vatnhitarinn virkar ekki.
- Bræðivörin hafa brunnið yfir. Kannið bræðivörin á pottinum og kannið
bræðivör í rafkerfinu.
- Kannið rafmagnið - spennan er 220/230 volt búnaðurinn tekur
nægilega mörg amper.
- Hafið samband við 5938@camargue.se
6. Undarlegt hljóð heyrist í dælunni.
- Dælan getur hafa sogað inn hár o.s.frv.
- Kannið sogsíuna í pottinum með því að taka hana úr.
- Stöðvið dæluna og fjarlægið lokið á dælunni. Fjarlægið hár eða annað
úr dæluhjólinu. Munið að herða skrúfu eins og nefnt var undir lið 2.
7. Vatn lekur undan afrennslinu.
- Afrennslisstútur og vatnslás eru ekki rétt tengdir. Ekki hefur verið
notað teflon-límband (4d).
- Snúið plaststykkinu á vatnslásnum þar sem frárennslisrörið er tengt.
Notið nóg af teflon-límbandi eða olíufeiti / hrosshári í
vatnslásasamskeytin og komið vatnslásnum aftur fyrir á
niðurfallsstútnum.
8. Vatnið lekur bak við nuddstútana.
- Nuddstútarnir eru ekki rétt settir upp.
- Hafið samband við 5938@camargue.se
9. Kraninn lekur.
- Keramikstykkið er óhreint og þarf að skipta um það.
- Pantið nýtt keramikstykki í 5938@camargue.se
10. Vatn lekur undir vatnskrananum.
- Kannið hvort tenging á heitu og köldu vatni við pottinn er rétt og
þétt með teflon-límbandi eða feiti og hári.
- Kannið hvort pakkningin er orðin of þurr og skiptið þá um hana.
- Herðið rærnar á bæði heita og kalda vatninu og kannið hvort
rörasamskeytin eru þétt.
11. Potturinn er rispaður og hefur misst gljáann.
- Ágeng hreinsiefni, skrúbbkrem eða skrúbbsvampur hafa skemmt
yfirborðið.
- Notið bílabón til að fægja yfirborðið.
12. Krómíhlutir virðast ryðgaðir.
- Kalksteinn hefur safnast upp og ryð komið í ljós.
- Ágeng hreinsiefni, skrúbbkrem eða skrúbbsvampur hafa skemmt
yfirborðið.
- Notið reglulega afkölkunarefni, vínedik eða sítrónusýru.
13. Nuddpotturinn er óstöðugur.
- Einn af stillanlegu fótunum er styttri en hinir.
- Stillið fæturna og notið hallamál til að fá pottinn stöðugan.
14. Frekari spurningar
- Hafið samband við þjónustuborð í 5938@camargue.se. Við aðstoðum
með ánægju!