Herunterladen Diese Seite drucken

IKEA PATRULL AA-929856-1 Bedienungsanleitung Seite 39

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 12
foreldratækinu.
5. Þegar foreldratækið er í sambandi
við barnatækið lýsir grænt gaumljós
(12). Ef tækin missa samband sín á
milli í meira en 30 sekúndur, blikkar
rautt gaumljós. Tækið gefur líka frá
sér viðvörunarhljóð. Hljóðið heyrist
líka ef slokknar á barnatækinu eða ef
tækin tvö eru stillt á sitt hvora rásina.
6. Þú getur haft tækið á þér með því að
setja band í gat fyrir hálsband (17)
eða nota meðfylgjandi smellu fyrir
belti (18). Ýttu stykkinu ofan á tækið
þar til smellur í. Togaðu það út og
dragðu af til að fjarlægja.
Svona hleður þú tækin
Notaðu aðeins meðfylgjandi AC
hleðslutæki (19) til að hlaða tækin með
því að stinga þeim í innstungu fyrir
hleðslutæki (7, 15). Notkun á öðrum
hleðslutækjum getur valdið skemmdum á
tækjunum.
Tvö hleðslutæki fylgja með svo þú getir
hlaðið bæði tækin í einu. Þú getur hlaðið
tækin hvort sem kveikt er á þeim eða
slökkt. Á meðan hleðslan stendur yfir
lýsir stöðugt rautt gaumljós (3,11).
All manuals and user guides at all-guides.com
MIKILVÆGT!
EKKI ER HÆGT AÐ SKIPTA UM
RAFHLÖÐUR. Farga þarf rafhlöðunum á
réttan hátt í samræmi við leiðbeiningar,
sjá hér að neðan.
Notaðu aðeins meðfylgjandi 6V 300mA
AC hleðslutæki til að hlaða sendi-
og móttökutæki. Notkun á öðrum
hleðslutækjum getur valdið skemmdum á
tækjunum.
Ef ekki er ætlunin að nota
ungbarnavaktarann í meira en viku, þarf
að ganga úr skugga um að rafhlöðurnar
séu fullhlaðnar áður en tækið er sett
í geymslu. Ef tækið er geymt lengi án
hleðslu gæti það hætt að virka. Með
reglulegri notkun, og aðeins í tilætluðum
tilgangi, endast rafhlöðurnar í 3-4 ár.
Taktu AC hleðslutækin úr sambandi þegar
þau eru ekki í notkun til að spara orku.
Hægt er að nota ungbarnavaktarann við
hitastig frá 0°C-50°C.
Skildu tækin ekki eftir í beinu sólarljósi
eða nálægt öðrum hitagjöfum, þar sem
þau geta þá ofhitnað.
Notið tækin ekki í bleytu, raka eða miklu
ryki þar sem það gæti valdið skemmdum.
39

Werbung

loading