Herunterladen Diese Seite drucken

IKEA TRIXIG AA-2394129-4 Bedienungsanleitung Seite 41

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 71
b. Notið öryggisbúnað. Notið alltaf öryggisgleraugu. Rétt notaður öryggisbúnaður eins
og rykgríma, öryggisskór, öryggishjálmur og heyrnarhlíf dregur úr slysahættu.
c. Gætið þess að ekki kvikni óvart á verkfærinu. Gætið þess að slökkt sé á
verkfærinu áður en því er stungið í samband. Ef haldið er á verkfæri með fingurinn
á gikknum eða stungið í samband á meðan kveikt er á því, eykst slysahætta.
d. Fjarlægið smærri verkfæri sem hanga mögulega á verkfærinu, til að mynda
skrúflykla og slíkt, áður en kveikt er á því.
e. Teygðu þig ekki of langt. Hafðu alltaf góða fótfestu. Þá hefurðu betri stjórn á
verkfærinu ef eitthvað óvænt gerist.
f. Vertu í viðeigandi klæðnaði. Vertu ekki í of víðum fatnaði eða með hangandi
skartgripi. Haltu hári, fötum og hönskum fjarri hlutum sem snúast. Víð föt, skartgripir
eða sítt hár geta fests í hlutum verkfærisins sem snúast.
g. Gætið þess að nota aukahluti eins og ryksafnara á réttan hátt. Notkun slíks
búnaðar getur dregið úr slysahættu.
h. Þó þú notir verkfæri oft máttu ekki gleyma eða hunsa öryggisatriði við notkun
þeirra. Óvarfærni gæti leitt til slysa á augabragði.
Notkun og umhirða verkfærisins
a. Þvingið ekki verkfærið. Notið rétt verkfæri fyrir hvert verkefni. Rétt valið verkfæri
vinnur verkefnið betur og á öruggari hátt.
b. Notið ekki verkfærið ef það fer ekki í gang þegar kveikt er á því. Verkfæri sem ekki
er hægt að kveikja á eða slökkva á eðlilegan hátt er hættulegt og þarfnast viðgerðar.
c. Takið úr sambandi áður en átt er við verkfærið á nokkurn hátt, skipt um
aukahluti eða það sett í geymslu. Slíkar varúðarráðstafanir draga úr líkum á að það
fari óvænt í gang.
d. Geymið verkfæri sem ekki eru í notkun þar sem börn ná ekki til og leyfið ekki
óvönum að nota verkfærið. Verkfæri eru hættuleg í höndum óþjálfaðra.
e. Haldið verkfærum vel við. Athugið reglulega hvort hlutar þess hafi skekkst eða
skemmst, eða hvort það sé skemmt á nokkurn annan hátt sem gæti orðið til þess
að það virki ekki sem skyldi. Ef það er skemmt þarf að láta gera við það áður en það
er notað. Mörg slysa má rekja til slælegs viðhalds.
f. Haldið verkfærum sem notuð eru til skurðar beittum og hreinum. Hnífar og blöð
sem haldið er beittum eru ólíklegri til að standa á sér og láta betur að stjórn.
g. Notið verkfærið, fylgihluti, skrúfbita og annað í samræmi við leiðbeiningar og á
tilætlaðan hátt í hverju tilviki fyrir sig. Takið alltaf tillit til aðstæðna og verkefnis.
Notkun verkfærisins í öðrum en tilætluðum tilgangi eykur slysahættu.
h. Hafðu handföng og grip þurr, hrein og laus við olíu eða smurningu. Sleip handföng
og grip koma í veg fyrir örugga notkun og stjórn á verkfærinu í óvæntum aðstæðum.
Notkun og umhirða rafhlöðu
a. Notið aðeins hleðslutæki sem samþykkt er af framleiðanda. Hleðslutæki sem
hentar einni rafhlöðu gæti valdið eldhættu ef notað með annarri rafhlöðu.
b. Notið aðeins rafhlöður sem ætlaðar eru þessu verkfæri. Ef notaðar eru aðrar
rafhlöður getur skapast slysa- og eldhætta.
c. Þegar rafhlöðurnar eru ekki í notkun ætti að geyma þær fjarri öðrum
málmhlutum eins og bréfaklemmum, smámynt, lyklum, nöglum, skrúfum og
öðrum smáhlutum úr málmi sem geta leitt straum. Skammhlaup í rafhlöðunum
getur valdið brunasárum eða eldhættu.
d. Við slæma meðhöndlun gæti rafhlaðan lekið. Snertið ekki vökvann. Ef vökvinn
41

Werbung

loading