Herunterladen Diese Seite drucken

IKEA TRIXIG AA-2394129-4 Bedienungsanleitung Seite 40

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 71
ALMENNAR ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Almennar öryggisleiðbeiningar
VIÐVÖRUN! Lesið allar öryggisviðvaranir, leiðbeiningar, skýringarmyndir
og forskriftir sem fylgja þessu rafmagnsverkfæri. Ef ekki er farið eftir öllum
leiðbeiningunum hér að neðan getur það valdið raflosti, eldsvoða og/eða alvarlegum
meiðslum.
Vistaðu allar viðvaranir og leiðbeiningar til síðari viðmiðunar
Hugtakið "rafmagnsverkfæri" í viðvörunum vísar til rafmagnstækis sem er knúið af
rafmagni eða rafhlöðuknúnu (þráðlausu) rafmagnverkfæri þínu.
Vinnusvæði
a. Hafið vinnusvæðið snyrtilegt og vel upplýst. Óreiða og slæm lýsing á vinnusvæði
býður hættunni heim.
b. Notið ekki verkfæri á stöðum þar sem getur skapast sprengihætta, til að mynda
nálægt eldfimum vökva, gasi eða ryki. Verkfæri geta gefið frá sér neista sem getur
kveikt í ryki og gufum.
c. Haldið börnum og nærstöddum fjarri vinnusvæði á meðan verkfærið er í notkun.
Ónæði getur orðið til þess að þú missir einbeitinguna.
Rafmagnsöryggi
a. Nota verður viðeigandi innstungu fyrir kló verkfærisins. Reynið aldrei að breyta
klónni á nokkurn hátt. Notið ekki millistykki með jarðtengdum verkfærum. Notkun
upprunalegra klóa og innstungna dregur úr hættu á raflosti.
b. Forðist að snerta jarðtengda fleti, eins og leiðslur, ofna, eldavélar eða kæla. Það
getur aukið hættu á raflosti ef notandinn er tengdur jörð.
c. Notið ekki verkfæri í regni eða bleytu. Ef vatn kemst inn í verkfærið er hætta á
raflosti.
d. Farið vel með snúruna. Notið snúruna aldrei til að bera verkfærið, draga það
áfram eða til að kippa úr sambandi. Haldið snúrunni fjarri hita, olíu, beittum hlutum
og hlutum á hreyfingu. Skemmd eða flækt snúra eykur hættu á raflosti.
e. Þegar verkfæri er notað utandyra, þarf að nota framlengingarsnúru sem til þess
er ætluð. Það dregur úr hættu á raflosti.
f. Ef ekki er komist hjá því að nota verkfærið við rök skilyrði ætti alltaf að nota
útsláttaröryggi. Það dregur úr hættu á raflosti.
Öryggi þitt
a. Vertu vakandi, gættu að því sem þú gerir og notaðu almenna skynsemi við
notkun verkfæra. Notaðu ekki verkfæri þegar þú ert þreytt/ur eða undir áhrifum
eiturlyfja, áfengis eða lyfja. Augnabliks einbeitingarskortur getur valdið alvarlegu
slysi.
40

Werbung

loading