Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Íslenska; Umhirðuleiðbeiningar - IKEA TRÅDFRI AA-2136862-3 Bedienungsanleitung

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
Íslenska
Notkun á þráðlausum aflrofa
Kveikja - hækka birtustig
Ýttu á hnappinn til að kveikja á IKEA Home smart
vörunni. Ýttu og haltu niðri til að hækka birtustig.
Slökkva - lækka birtustig
Ýttu á hnappinn til að slökkva á IKEA Home smart
vörunni. Ýttu og haltu niðri til að lækka birtustig.
Pörun: Bættu IKEA Home smart vöru við kerfið.
Skoðaðu leiðbeiningar hér að neðan:
BÆTA VÖRUM VIÐ ÞRÁÐLAUSAN AFLROFA
Þegar þráðlaus aflrofi er seldur með IKEA Home smart
vöru (í sömu pakkningu) er þegar búið að para tækin
saman.
Til að bæta við fleiri vörum þarf að framkvæma
neðangreind skref:
Gakktu úr skugga um að kveikt sé á meginaflgjafa.
1. Haltu rofanum nálægt IKEA Home smart vörunni
sem þú vilt bæta við (ekki í meira en 5 cm fjarlægð).
2. Ýttu og haltu pörunarhnappnum inni í a.m.k. 10
sekúndur, hnappurinn er undir lokinu að aftan.
3. Rautt ljós lýsir stöðugt á aflrofanum. Ljós á IKEA
Home smart vörunni byrjar að blikka rólega einu
sinni til að gefa til kynna að hún hafi verið pöruð.
Hægt er að para allt að 10 IKEA Home smart vörur við
einn rofa.
Paraðu eina vöru í einu. Ef IKEA Home smart vörurnar
eru nálægar hvor annarri skaltu taka vörurnar úr
sambandi sem þegar hafa verið paraðar.
ENDURSTILLA
Fyrir þráðlausan rofa til að slökkva og kveikja:
Ýttu 4 sinnum á pörunarhnappinn innan 5 sekúnda.
SKIPT UM RAFHLÖÐU
Þegar þráðlaus rofi til að slökkva og kveikja er
reglulega notaður, eins og ætlast er til, duga
rafhlöðurnar í um það bil 2 ár.
Þegar það er kominn tími á að skipta um rafhlöður
blikkar rautt LED ljós þegar þú slekkur/kveikir á
rofanum.
Opnaðu lokið að aftan og skiptu skiptu um rafhlöðu
með nýrri CR2032 rafhlöðu.
VARÚÐ!
Sprengihætta getur stafað af því að skipta út rafhlöðu
fyrir aðra af rangri tegund. Fargaðu rafhlöðunni í
samræmi við leiðbeiningar.
MIKILVÆGT!
Þráðlaus rofi til að slökkva og kveikja er aðeins
ætlaður til notkunar innanhúss og við hitastig frá
0º C til 40º C.
Ekki skilja þráðlausa rofann eftir í beinu sólarljósi
eða nálægt hitagjöfum, þar sem það gæti ofhitnað.
Drægi á milli þráðlausa rofans og og
móttökutækisins er mælt á opnu svæði.
Mismunandi byggingarefni og staðsetning
tækjanna geta haft áhrif á drægi þráðlausu
tengingarinnar.
UMHIRÐULEIÐBEININGAR
Til að þrífa þráðlausa rofann til að kveikja og slökkva
ætti að strjúka af honum með rökum klút.
ATHUGAÐU!
Ekki nota sterk hreinsiefni eða kemísk efni, þar sem
það getur skemmt vöruna.
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR
Tegund: E1743 þráðlaus aflrofi
Inntak: 3V, CR2032 Rafhlaða
Drægi: 10m í opnu rými
Aðeins til notkunar innanhúss
Vinnslutíðni: 2405-2480Mhz
Útgangsafl: 3 dBm
Framleiðandi: IKEA of Sweden AB
Heimilsfang:
Box 702, 343 81 ÄLMHULT
Táknið með mynd af ruslatunnu með krossi
yfir þýðir að ekki má farga vörunni með
venjulegu heimilissorpi. Vörunni þarf að skila í
endurvinnslu eins og lög gera ráð fyrir á hverjum stað
fyrir sig. Með því að henda slíkum vörum ekki með
venjulegu heimilissorpi hjálpar þú til við að draga úr
því magni af úrgangi sem þarf að brenna eða nota
sem landfyllingu og lágmarkar möguleg neikvæð
áhrif á heilsu fólks og umhverfið. Þú færð nánari
upplýsingar í IKEA versluninni.
9

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis