Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Wood's Airmaster WOZ100 Bedienungsanleitung Seite 67

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 39
NOTKUN OG VIÐHALD ÓSONTÆKISINS
Notkun
Settu ósontækið á þurran stað með
góðri loftræstingu, helst hátt uppi um
1,5 m yfir gólfi. Mikilvægt er að ekkert
hindri flæði lofts að viftunni.
Tengdu meðfylgjandi rafmagnssnúru
við innstungu (A4).
Nú er má ræsa ósontækið með Á/
Af-hnappinum (A3). Ósontækið byrjar
af fullri orku (100%).
Það getur tekið allt að um 5 mínútur
áður en fullur kraftur næst.
Að ræsa vélina
1. Að ræsa ósontækið.
Þrýstu á afltakkann (A3) á ON/Á
2. Að slökkva á ósontækinu
Þrýstu á afltakkann (A3) á AF
Stafræn stýring með tímastilli
(Á við um Wood's Airmaster
WOZ3000/6000)
Hægt er að stilla ósonmagnið/afköstin
á bilinu 0-100%.
Tímastillingar: Tímastillir fyrir gang
allan sólarhringinn, tímabil og
stöðvun.
Sjá nánari leiðbeiningar „Stafræn
stýring" á næstu síðu.
Viðhald
ATH!
Ávallt skal aftengja rafmagnssnúruna
áður en þjónustu/viðhaldi er sinnt.
Að skipta um forsíu
Skipt skal um forsíu á tveggja til
fjögurra mánaða fresti eftir því
hvernig umhverfið er.
1. Losaðu síuhaldarann (A2)
með höndunum.
2. Settu nýja síu í.
3. Settu síuhaldarann í aftur (A2).
Þrif/skipti á keramikplötu
Þegar háspennu er hleypt á
keramikplötuna myndast óson.
Keramikplötuna skal hreinsa reglulega
með rauðspritti eða svipuðum efnum.
Þurrkið alla fleti með þurrum klút.
Gangið úr skugga um að allir íhlutir
séu alveg þurrir áður en tækið er
endurræst. Ef ósonstyrkurinn minnkar
eða hverfur alveg þarf að skipta um
keramikplötu.
A. Ef ósontækið er búið sýnilegum
grindarskrúfum á langhliðunum:
1. Losaðu skrúfurnar átta á langhliðum
grindarinnar.
2. Lyftu upp hlíf tækisins.
3. Farðu í lið C.
B. Ef ósontækið hefur engar
sýnilegar grindarskrúfur:
1. Losaðu skrúfurnar tvær sem halda
handfanginu.
2. Snúðu tækinu á hvolf.
3. Losaðu skrúfurnar fjórar sem halda
fótum tækisins.
4. Fjarlægðu grindarhlífina með því að
toga/þrýsta henni fram.
5. Farðu í lið C.
C. Skipta um keramikplötu:
1. Losaðu hraðtengið (F5).
2a. WOZ100
Losaður skrúfurnar tvær sem halda
keramikplötunni (F3).
2b. WOZ3000/6000
Takið keramikplötuna (F3) úr
haldaranum.
3. Setjið saman í öfugri röð.
Notendahandbók
ATHUGAÐU!
Keramikplatan og forsían eru slithlutir
og falla ekki undir ábyrgðina.
Öll önnur þjónusta en sú sem
hér er lýst skal fara fram hjá
framleiðandanum eða viðurkenndum
þjónustuaðila.
Þjónusta
Ef viðhalda þarf ósontækinu skal hafa
samband við söluaðilann. Kvittun
þarf að sýna í tengslum við allar
ábyrgðarkröfur.
Leiðbeiningar um
geymslu
Geymdu ósontækið við stofuhita á
bilinu +1°C til +35°C.
Mikilvægt er að skipt sé um
forsíu með reglulegu millibili
og að skipt sé um keramikplötu
reglulega. Annars getur afkasta-
geta ósontækisins minnkað og
það hugsanlega skemmst.
IS
67

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

Airmaster woz3000Airmaster woz6000

Inhaltsverzeichnis