Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Íslenska - IKEA FREKVENS Bedienungsanleitung

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für FREKVENS:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 6
ÍSLENSKA
EFNISYFIRLIT
1. Hljóðstilling
2. Kveikja/Slökkva
3. AC IN
4. AC OUT
5. AUDIO IN
6. AUDIO OUT
7. SUBWOOFER OUT
8. SUBWOOFER IN
9. Bassastilling
10. Handfang með millitengingum
11. Hlíf
12. Fótur
13. Lok fyrir rafhlöðuhólf
14. Rafmagnssnúra
15. 3,5 Hljóðsnúra
Uppsetning
1. Tengdu rafmagnssnúru við AC in-tengið (3) á
hátalaranum og hátalarann við bassaboxið með
rafmagnssnúru á milli AC out (4) og AC in (3) á
bassaboxinu.
2. Tengdu 3,5 mm hljóðsnúru á milli Subwoofer
OUT (7) og Subwoofer IN (8).
3. Ýttu á báða takkana (2) til að kveikja og slökkva
á á hátalaranum og bassaboxinu. Þá lýsir hvítt
LED ljós. Ef parað tæki finnst lýsir LED ljósið á
hátalaranum án þess að blikka og þú getur notað
hátalarann.
4. Ef ekkert tæki finnst þá heldur LED ljósið áfram
að blikka og tækið fer sjálfkrafa í pörunarham.
Farðu í Bluetooth-stillingarnar í símanum þínum
eða spjaldtölvu til að tengjast FREKVENS
10x20. LED ljósið ætti þá að hætta að blikka
og hátalarinn er tilbúinn til notkunar. Þegar
hátalarinn hefur ekki spilað tónlist í 20 mínútur
fer hann í svefnham.
Stilla hljóðstyrk
Snúðu takkanum (1) til vinstri til að draga úr
hljóðstyrk og til hægri til að auka hljóðstyrk.
Snúðu takkanum (9) til vinstri til að draga úr bassa
og til hægri til að auka bassa.
Para við Bluetooth-tæki
(hámark átta tæki)
1. Farðu í Bluetooth-valmyndina í símanum þínum
eða spjaldtölvu og tengdu við FREKVENS 10x20.
2. Þegar tækið hefur tengst Bluetooth hættir hvíta
LED ljósið að blikka.
Aftengjast Bluetooth-tæki
Farðu í Bluetooth-valmyndina í símanum þínum eða
spjaldtölvu og aftengdu FREKVENS 10x20.
Nota með öðru tæki
Tengdu tækið við AUDIO IN-tengið (5) aftan
á hátalaranum. Hátalarinn skynjar sjálfkrafa
utanaðkomandi tæki og slekkur á Bluetooth-
stillingunni. Notaðu þriggja póla 3,5 mm
hljóðsnúru.
Nota og hlaða hátalarann
FREKVENS 10x20 með bassaboxi getur verið
færanlegur. ENEBY rafhlöðupakki fyrir bassabox og
BRAUNIT rafhlöðupakki fyrir hátalara eru seldir sér.
• Opnaðu hólfið (13) til að bæta við rafhlöðu,
gættu þess að hún snúi rétt.
• Rafhlaðan hleðst í vörunni á meðan hún er tengd
við rafmagn.
• Þegar rafhlaðan er að tæmast blikkar rautt LED
ljós á takkanum (2). Á meðan rafhlaðan hleður
sig lýsir rautt LED ljós.
Aukahlutir
Hlíf: Togaðu af til að losa og þrýstu á til að festa.
Handfang: Notaðu sexkant til að festa handfangið
á/taka það af, með tveimur millitengingum og
fjórum skrúfum.
Millitengingar: Festu hátalarann á bassaboxið
með millitengingunum sem fylgja með.
Endurstilla á grunnstillingu
Ýttu á takkann (2) í 10 sek. Það eyðir út öllum
pöruðum Bluetooth-tækjum.
Öryggi og mikilvægar upplýsingar
VARÚÐ:
— Hætta á ofhitnun! Ekki koma fyrir í þröngu rými.
Hafðu alltaf að lágmarki 5 mm bil í kringum
hátalarann svo pláss sé fyrir loftræstingu. Vertu
viss um að gluggatjöld eða aðrir hlutir leggist
ekki yfir loftræstiraufar.
— Ekki setja hátalarann eða rafhlöður nálægt
opnum eldi eða öðrum hitagjöfum, þ.m.t. í
beinu sólarljósi.
— Notist aðeins innandyra. Verja þarf
tækjabúnaðinn fyrir vatnsleka eða skvettum,
og hlutir fylltir með vatni, svo sem blómavasar,
ættu ekki að vera settir ofan á hátalarann.
— Ekki setja ofan á önnur raftæki.
— Greitt aðgengi þarf að vera að tengli úr og í
hátalarann til að hægt sé að rjúfa straum.
— Ef rafmagnssnúra skemmist ætti að skipta henni
út fyrir nýja snúru sem samþykkt er til notkunar
í þínu landi.
— Rafhlöður (rafhlöðupakki eða uppsettar
rafhlöður) ættu ekki að komast í snertingu við
mikinn hita, svo sem sólarljós, eld eða annað
þess háttar.
MIKILVÆGT!
— Hátalarinn er aðeins ætlaður til notkunar
innandyra og við hitastig frá 0º C til 45º C.
— Ekki skilja hátalarann eftir í beinu sólarljósi eða
nálægt hitagjöfum, þar sem hann gæti ofhitnað.
— Gættu þess að hátalarinn komist ekki í
snertingu við blautt, rakt eða óhóflega rykug
umhverfi, þar sem það gæti valdið skemmdum.
— Drægi á milli hátalarans og móttökutækisins er
mæld á opnu svæði.
14

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis