Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

Tilætluð Notkun - 3M DBI Sala Truck Hitch Davit Mount System Sicherheitshinweise & Installationshandbuch

Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 28
ÖRYGGISUPPLÝSINGAR
IS
Vinsamlegast lestu, hafðu skilning á og fylgdu öllum öryggisupplýsingum sem eru í þessum leiðbeiningum áður en þessi búnaður
fyrir inngöngu í lokað rými/björgunarbúnaður er notaður. EF LEIÐBEININGUM ÞESSUM ER EKKI FYLGT EFTIR, GETUR ÞAÐ VALDIÐ
ALVARLEGUM MEÐSLUM, LÍKAMSTJÓNI EÐA DAUÐA.
Leiðbeiningar þessar verður að afhenda notanda þessa búnaðar. Geymdu þessar leiðbeiningar til að styðjast við í framtíðinni.
Tilætluð notkun:
Þessi búnaður fyrir inngöngu í lokað rými/björgunarbúnaður er ætlaður til notkunar sem hluti af persónulegu fallstöðvunarkerfi eða björgunarkerfi.
Öll önnur notkun, þ.m.t., en takmarkast ekki við, ósamþykkta meðhöndlun efna, notkun í afþreyingar- eða íþróttaskyni eða önnur notkun sem ekki
er lýst í notendaleiðbeiningum eða uppsetningarleiðbeiningum, er ekki samþykkt af 3M og gæti valdið alvarlegum meiðslum eða dauða.
Einungis þjálfaðir notendur á vinnustað skulu nota þennan búnað.
!
VIÐVÖRUN
Þessi búnaður fyrir inngöngu í lokað rými/björgunarbúnaður er hluti af fallstöðvunarkerfi eða björgunarkerfi. Ætlast er til að allir notendur séu
fullþjálfaðir í öruggri uppsetningu og notkun alls kerfisins. Röng notkun þessa búnaðar getur valdið alvarlegum meiðslum eða dauða. Til
að geta framkvæmt rétt val, notkun, viðhald og þjónustu, skaltu lesa allar leiðbeiningar um vöru og allar ráðleggingar framleiðanda, ræddu við
yfirmann þinn eða hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M.
Til að lágmarka þá áhættu sem tengist því að vinna með búnað fyrir inngöngu í lokað rými/björgunarbúnað sem getur, í versta
falli, valdið alvarlegu líkamstjóni eða dauða, skal gera eftirfarandi:
-
Skoðaðu búnaðinn fyrir sérhverja notkun, a.m.k. árlega og ef fall hefur átt sér stað. Skoðaðu í samræmi við notendaleiðbeiningarnar.
-
Ef skoðunin leiðir óöruggt ástand eða galla í ljós, skal taka búnaðinn úr umferð og gera við hann eða endurnýja í samræmi við
notendaleiðbeiningar.
-
Allan búnað sem hefur verið notaður í falli eða orðið fyrir miklu höggi þarf umsvifalaust að taka úr umferð. Kynntu þér
notendaleiðbeiningar eða hafðu samband við fallverndun 3M.
-
Búnaðinn má aðeins setja upp á þann hátt sem lýst er í uppsetningarleiðbeiningum eða notendaleiðbeiningum. Uppsetning og notkun fyrir
utan umfang leiðbeininga þarf að vera samþykkt skriflega af fallverndun 3M.
-
Það undirlag eða mannvirki sem búnaðurinn er festur við verður að þola þann kyrrstöðuþunga sem tilgreindur er fyrir búnaðinn í
notendaleiðbeiningum eða uppsetningarleiðbeiningum.
-
Ekki má fara fram fyrir fjölda leyfilegra notenda.
-
Aldrei má vinna fyrir neðan upphengdan farm eða starfsmann.
-
Sýna skal varúð við uppsetningu, notkun og tilfærslu á búnaðinum þar sem ganghlutir geta valdið hugsanlegum klemmupunktum. Kynntu
þér notendaleiðbeiningarnar.
-
Tryggja skal að réttu verklagi fyrir læsingu/merkingu hafi verið fylgt eins og við á.
-
Aldrei má festa við kerfi fyrr en það er staðsett, samsett að fullu, stillt og uppsett. Ekki má stilla kerfið þegar notandinn er fastur við það.
-
Aðeins má tengja undirkerfi fallvarnar við tilgreindan festipunkt á búnaðinum.
-
Áður en borað er eða fest, skal tryggja að snerting eigi sér ekki stað við raflínur, gasleiðslur eða önnur mikilvæg innfelld kerfi af bornum
eða búnaðinum.
-
Tryggja skal að öll fallvarnarkerfi/undirkerfi sem eru samsett úr íhlutum mismunandi framleiðenda séu samhæfð og mæti kröfum
viðeigandi staðla, þ.m.t. staðlinum ANSI Z359 eða öðrum viðeigandi fallvarnarkóðum, stöðlum eða kröfum. Alltaf skal ráðfæra sig við
hæfan eða vottaðan aðila, áður en þessi kerfi eru notuð.
Til að minnka áhættuna sem fylgir því að starfa hátt uppi, sem gæti, ef ekki er komið í veg fyrir það, valdið alvarlegu
líkamstjóni eða dauða:
-
Tryggðu að heilsa þín og líkamlegt ástand geri þér örugglega kleift að þola allt það álag sem fylgir því að starfa hátt uppi. Ráðfærðu þig
við lækni ef þú ert með einhverjar spurningar varðandi hæfni þína til að nota þennan búnað.
-
Aldrei skal fara yfir leyfilega getu fallvarnarbúnaðarins.
-
Aldrei skal fara umfram hámarkslengd frjáls falls sem fallvarnarbúnaðurinn leyfir.
-
Ekki nota neinn fallvarnarbúnað sem bilar við prófun eða við eftirlit, eða ef þú hefur áhyggjur af notkun búnaðarins eða telur að hann
henti ekki í það verk sem er fyrir höndum. Hafðu samband við tæknilega þjónustu 3M ef þú ert með einhverjar spurningar.
-
Sum undirkerfi og samsetningar íhluta geta truflað notkun þessa búnaðar. Einungis skal nota tengingar sem eru samhæfðar við þennan
búnað. Ráðfærðu þig við 3M fyrir notkun þessa búnaðar með íhlutum eða undirkerfum sem eru frábrugðin þeim kerfum sem er lýst í
notendaleiðbeiningunum.
-
Nota skal auka varúðarráðstafanir þegar verið er að vinna nálægt tækjabúnaði sem er á hreyfingu (t.d. á olíuborpöllum), nálægt
rafmagnshættu, við hátt hitastig, við efnahættu, þar sem sprengihætta er eða hættulegt gas, skarpar brúnir, eða undir hlutum sem gætu
fallið á þig eða fallið á verndarbúnaðinn.
-
Notaðu Arc Flash- eða Hot Works-búnað þegar þú vinnur í mjög heitu umhverfi.
-
Forðastu yfirborðsfleti og hluti sem geta skaðað notandann eða búnaðinn.
-
Tryggðu að það sé viðeigandi pláss til að falla þegar þú vinnur hátt uppi.
-
Aldrei breyta eða umbreyta fallvarnarbúnaðinum. Einungis 3M eða aðilar sem hafa skriflegt umboð frá 3M mega gera við þennan búnað.
-
Áður en fallvarnarbúnaðurinn er notaður skal tryggja að neyðaráætlun sé til um það hvernig samstundis skuli bregðast við ef fall eða slys
á sér stað.
-
Ef atvik á sér stað skal umsvifalaust leita læknishjálpar fyrir þann starfsmann sem fallið hefur.
-
Ekki skal nota líkamsbelti til að stöðva fall. Einungis skal nota full líkamsbeisli til að stöðva fall.
-
Lágmarka skal sveiflur með því að vinna eins beint fyrir neðan festipunktinn og mögulegt er.
-
Ef þjálfun fer fram með þessum búnaði, verður að nota annað fallvarnarkerfi þannig að sá sem er í þjálfun sé ekki í hættu við að falla
óvart til jarðar.
-
Alltaf skal nota viðeigandi persónuhlífar þegar verið er að setja upp, nota eða hafa eftirlit með búnaðinum/kerfinu.
EYÐUBLAÐ NR: 5908277 ENDURSK.: A
58

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis