Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 5
ÍSLENSKA
MIKILVÆGT:
LESIÐ VANDLEGA OG GEYMIÐ
Fylgið vandlega öllum viðvörunum og
samsetningarleiðbeiningum.
Notið hengirúmið EKKI fyrr en uppsetningu
er lokið að fullu.
VARÚÐ!
Hámarksburðarþol er 120 kg/265 lb.
Setjið hengirúmið upp þannig að lægsti
punkturinn sé ekki meira en 60 cm frá
jörðu.
Setjið hengirúmið EKKI upp yfir malbiki,
steypu, þjappaðri mold eða öðru hörðu
undirlagi. Fall á hart undirlag getur
valdið alvarlegum meiðslum.
Athugið fyrir HVERJA NOTKUN hvort
slit sjáist á hengirúmi, köðlum eða
festingum.
Börn ættu ekki að nota hengirúmið án
eftirlits fullorðinna.
Kennið börnum að ganga aldrei eða leika
sér nálægt hengirúminu þegar það er á
hreyfingu.
Stökkvið EKKI úr hengirúminu á meðan
það er á hreyfingu.
Notið EKKI hengirúmið ef einhver hluti
þess er bilaður, rifinn eða týndur. Skiptið
ekki út hlutum í hengirúminu. Athugið
hjá IKEA hvort varahlutir séu fáanlegir.
Umhirðuleiðbeiningar
Þrif: Vöruna þarf að handþvo með heitu
vatni (40°C). Forðist að bleyta þá hluta
vörunnar sem eru úr tré eða málmi. Setjið
hengirúmið og böndin í stóra fötu eða
ílát sem fyllt er heitu vatni. Setjið milt
hreinsiefni út í vatnið og notið mjúkan
bursta til að nudda úr bletti. Skolið vel. Látið
þorna á flötu undirlagi.
Viðhald: Viðarhlutarnir eru formeðhöndlaðir
með viðarbæsi. Til að halda þeim nýlegum
lengur þarf að bera á þá reglulega. Viðarbæs
er selt sér.
Geymsla: Þegar hengirúmið er ekki í
reglulegri notkun ætti að geyma það á
svölum og þurrum stað innandyra. Þvoið og
þurrkið hengirúmið vandlega áður en það er
sett í geymslu.
Viðbótarviðvaranir/-leiðbeiningar
Viðbótarviðvaranir/-leiðbeiningar þegar
notað með GÅRÖ statífi fyrir hengirúm
Setjið GÅRÖ statífið saman og festið
FREDÖN hengirúm á samkvæmt
meðfylgjandi leiðbeiningum.
VARÚÐ!
Komið samansettu statífinu fyrir
á flötu og jöfnu yfirborði sem er í
öruggri fjarlægð frá öðrum hlutum og
hindrunum.
Farið reglulega yfir festingar og herðið
þær eftir þörfum.
Rólið EKKI of harkalega í hengirúminu
þar sem það getur gert það óstöðugt.
Notið hengirúmið EKKI ef einhverjir
hlutar þess eru týndir eða hafa losnað.
Notið EKKI utanaðkomandi varahluti.
Varahluti má nálgast í IKEA versluninni.
9

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Inhaltsverzeichnis