http://ikea-club.com.ua
ÍSLENSKA
MIKILVÆGT - GEYMIÐ TIL
AÐ LESA SÍÐAR - LESIÐ
VANDLEGA
Fylgdu þessum viðvörunum og
samsetningarleiðbeiningunum vandlega.
Geymdu til að lesa síðar.
Lágmarksstærð á dýnu sem mælt er með
fyrir þetta rimlarúm/rúm er 120 cm x 60 cm
og þykktin má ekki vera meiri 12 cm.
VIÐVÖRUN
— Notið rimlarúmið ekki ef einhverjir hlutar
þess eru skemmdir eða brotnir eða
ef einhverja hluta þess vantar. Hafðu
samband við IKEA verslunina til að fá
varahluti og leiðbeiningar ef þörf er á.
Notið ekki aðra varahluti.
— Skiljið ekki neitt eftir í rimlarúminu eða
nálægt því sem barnið gæti náð fótfestu
á eða gæti skapað hættu á köfnun
eða kyrkingu, t.d. snæri eða snúrur í
rúllugardínum/gluggatjöldum og þess
háttar.
— Það er ekki öruggt a nota fleiri en eina
dýnu í rimlarúminu.
— Verið meðvituð um hættuna sem fylgir
því að hafa rúmið nærri opnum eldi
eða öðrum öflugum hitagjöfum eins og
gaseldi o.þ.h.
AÐVÖRUN:
Ekki festa til dæmis snaga eða höldur á
barnarúmið. Það gæti skapað slysahættu
fyrir barnið.
Mikilvægar öryggisupplýsingar!
— Herðið allar samsetningaskrúfur fyrir
notkun. Kannið allar festingar reglulega
og herðið ef nauðsyn krefur.
— Lægsta staða rúmbotnsins er öruggust.
Til að koma í veg fyrir að barnið detti
ætti rúmbotninn að vera stilltur í lægstu
stöðu um leið og barnið er nógu gamalt
til að setjast upp.
— Þykkt dýnunnar ætti að vera þannig að
hæðin frá efri brún dýnunnar að efri
brún rimlarúmsins sé að minnsta kosti
500 mm í lægstu stöðu rúmbotnsins og
að minnsta kosti 200 mm í hæstu stöðu
rúmbotnsins.
— Til að koma í veg fyrir áverka ef barnið
dettur þegar það getur klifraðu upp úr
rúminu, ætti barnið að hætta að nota
rúmið.
— Notið aldrei plastpoka eða aðra
plastfilmu sem dýnuhlífar því þær geta
valdið köfnun.
Umhirða og þrif
Þrífið með rökum klút og mildu hreinsiefni.
Þurrkið með mjúkum hreinum klút.
9