Notendaleiðbeiningar
IS
HÖFUÐBÚNAÐUR OG HEYRNARHLÍFAR TIL AÐ DEYFA HÁVAÐA
Þessar notendaleiðbeiningar eiga við eftirfarandi gerðir:
Heyrnarhlífar með höfuðbandi:
49002-001 - AM/FM-útvarp, hljóðstigsstýring, Bluetooth®
Hjálmur/hetta fest á heyrnarhlífina:
49002-001 - AM/FM-útvarp, hljóðstigsstýring, Bluetooth®
Virkni og notendaleiðbeiningar eru mismunandi eftir gerðum. Fylgdu leiðbeiningunum sem eiga við
þína gerð af heyrnartækjum.
Höfuðbúnaðurinn sameinar virkni AM/FM-útvarps, hljóðstigsstýrða „virka hlustun" og þráðlaus samskipti í
gegnum farsíma (eða aðra fjarskiptabúnaði) og tónlist sem streymir frá (MP3-spilurum, farsímum, tölvum
o.s.frv.) tæknibúnaði sem er samhæfður við Bluetooth® og A2DP (Advanced Audio Distribution Profile
(fullkomnu hljóðdreifingarsniði)).
Hljóðnemi höfuðbúnaðarins, sem einnig getur bælt niður hávaða, veitir skýr samskipti, jafnvel í miklum
hávaða.
Lestu vandlega notendaleiðbeiningar til að fá sem mest út úr Hellberg-vörunni þinni.
• Til að öðlast hámarks þægindi og bestu áhrifin með þessum heyrnarhlífum, verður þú að nota,
viðhalda og stilla heyrnarhlífarnar í samræmi við eftirfarandi leiðbeiningar.
• Heyrnarskjól og sérstaklega heyrnarpúðar geta versnað við notkun og ætti að skoða reglulega vegna
sprungumyndunar og hljóðleka.
• Notkun svita-/óhreinindavarnarbúnaðar yfir þéttingarhringina getur dregið úr eiginleikum
hávaðadeyfingar heyrnarhlífarinnar.
• Ákveðin kemísk efni geta haft skaðleg áhrif á vöruna. Frekari upplýsingar eru tiltækar hjá
framleiðanda.
• Eiginleikar hávaðadeyfingar heyrnarhlífarinnar geta minnkað stórkostlega til dæmis vegna notkunar
á þykkri gleraugnaumgjörð, skíðahettu/lambhúshettu, o.s.frv. Fjarlægðu allt hár frá eyrunum og setjið
eyrnaskjólin yfir eyrun þannig að þau passi þægilega og liggi þétt. Tryggðu að eyrun séu
algjörlega hulin af eyrnaskjólunum og að þú hafir jafnan þrýsting í kringum eyrun.
Höfuðband (mynd C)
• Stilltu heyrnarhlífina í stærstu mögulega stærð og settu yfir höfuð þér.
• Stilltu bandið þannig að heyrnarhlífin hvíli létt á hvirflinum.
Festing hjálms/hettu (mynd D)
• Ýttu festingu hjálmsins inn í raufáfestingu hjálmsins þangað til að hún smellur á sinn stað.
• Settu eyrnaskjólin yfir eyrun og ýttu inn á við, þangað til að þú heyrir smell. Stilltu eyrnaskjólin þannig
að hjálmurinn passi þægilega á höfuð þitt.
Umönnun
Þrífðu með mildri sápu. Þú verður að tryggja að hreinsiefnið sem þú notar erti ekki hörundið. Heyrnarhlífarnar
verður að geyma á þurrum og hreinum stað, t.d. í upphaflegu umbúðunum. Ekki dýfa vörunni í vatn!
Viðvörun!
Ef leiðbeiningunum hér að ofan er ekki fylgt eftir, gæti hávaðadeyfingin minnkað til muna.
Heyrnarhlífina verður alltaf að nota í hávaðasömu umhverfi til að veita fulla vernd!
Aðeins 100% nýting veitir fulla vernd.
141
Synergy
Synergy