Herunterladen Diese Seite drucken

Lenovo TB-7306F Bedienungsanleitung Seite 148

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für TB-7306F:

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 15
Viðvörun vegna innbyggðrar hleðslurafhlöðu
Hætta: Ekki skal reyna að skipta um innbyggðu litíumjónahleðslurafhlöðuna. Ef þú
skiptir upprunalegu rafhlöðunni út fyrir ósamrýmanlega rafhlöðu getur það leitt til
aukinnar hættu á meiðslum eða skemmdum á eignum vegna sprengingar, mikils
hita eða annarrar áhættu. Ekki reyna að taka í sundur eða breyta rafhlöðupakkanum.
Tilraun til að gera það getur valdið skaðlegri sprengingu eða leka á rafhlöðuefnum.
Fylgja skal öllum staðbundnum reglum eða reglugerðum þegar rafhlöðu er
fargað. Ekki skal fleygja rafhlöðupakkanum með heimilissorpi. Farga skal notuðum
rafhlöðum í samræmi við leiðbeiningarnar.
Rafhlöðupakkinn inniheldur lítið magn af skaðlegum efnum.
Til að forðast slys:
• Geymið rafhlöðupakkann fjarri opnum eldi eða öðrum hitagjöfum.
• Ekki má setja rafhlöðupakkann í vatn, regn eða aðra ætandi vökva.
• Ekki má láta rafhlöðuna vera í umhverfi með mjög háum hita.
• Forðist að valda skammhlaupi á rafhlöðupakka.
• Geymið rafhlöðupakkann þar sem börn eða gæludýr ná ekki til.
• Ekki skal geyma rafhlöðuna í umhverfi þar sem loftþrýstingur er mjög lágur. Það
getur leitt til sprengingar eða leka eldfims vökva eða lofttegunda frá rafhlöðunni.
Til að lengja endingu rafhlöðunnar mælum við með því að rafhlaðan sé hlaðin í að
minnsta kosti 30% til 50% af afkastagetu í hvert skipti og hún svo endurhlaðin á
þriggja mánaða fresti til að koma í veg fyrir að hún afhlaðist.
Upplýsingar um augnvernd og öryggi
Lenovo leggur áherslu á afköst skjáa sinna en er sömuleiðis annt um að
vernda augu notenda. Þessi vara hefur fengið vottunina „Low Blue Light"
(lítil blá birta) frá TÜV Rheinland og þess vegna má nota hana áhyggjulaust.
Frekari upplýsingar eru á https://support.lenovo.com.
Merki fyrir samhæfi í Evrasíu
146

Werbung

loading

Diese Anleitung auch für:

Tab m7 3rd genTb-7306x