Herunterladen Inhalt Inhalt Diese Seite drucken

IKEA AVKYLD Handbuch Seite 71

Vorschau ausblenden Andere Handbücher für AVKYLD:
Inhaltsverzeichnis

Werbung

Verfügbare Sprachen
  • DE

Verfügbare Sprachen

  • DEUTSCH, seite 25
ÍSLENSKA
Athugið að hurð frystisins lokist rétt eftir
að maturinn hefur verið settur inn.
Skipta skal um skemmd þétti eins fljótt
og auðið er.
Notið ísskápinn eingöngu til að geyma
fersk matvæli og frystinn til að geyma
frosinn mat, til að frysta matvæli og búa til
klaka.
Forðist að láta óinnpakkaðan mat
komast í snertingu við innri fleti ísskápsins
eða frystisins.
Tækið gæti haft sérstök hólf (hólf fyrir fersk
matvæli, núllgráðubox, ...).
Nema að annað sé tekið fram í handbók
tækisins er hægt að taka hólfin úr og
viðhalda jafngildum afköstum.
C-Pentane er notað sem þensluefni í
einangrunarfreyði og er eldfim
gastegund.
Hólfin sem henta best fyrir geymslu á
ákveðnum fæðutegundum, með tilliti
til mismunandi hitastigs í mismunandi
hólfum, eru eftirfarandi:
- Ísskápur:
1) Efra svæði ísskáps og dyr - temprað
svæði: Geymið hitabeltisaldin, brúsa,
drykki, egg, sósur, súrsað grænmeti,
smjör, sultu
2) Miðsvæði ísskáps - kalt svæði:
Geymið ost, mjólk, mjólkurvörur, mat úr
matvöruverslunum, jógúrt
3) Neðra svæði ísskáps - kaldasta svæði:
Geymið skorið álegg, eftirrétti, kjöt og
fisk, ostakökur, ferskt pasta, sýrðan rjóma,
pestó/salsa, heimalagaðan mat, kökukrem,
búðing og smurost
4) Ávaxta- og grænmetisskúffa neðst í
ísskápnum: Geymið grænmeti og ávexti
(fyrir utan hitabeltisaldin)
5) Kælihólf: Geymið aðeins kjöt og fisk í
köldustu skúffunni. Til að forðast mengun
matar skal fara skv. eftirfarandi:
– Að hafa hurðina opna í langan tíma getur
valdið verulegri hækkun hitastigs í hólfum
tækisins.
– Hreinsið reglulega yfirborð sem
gætu komist í snertingu við matvæli og
aðgengilegan frárennslisbúnað.
– Hreinsið vatnsgeyma ef þeir hafa
ekki verið notaðir í 48 klst.; skolið
vatnsbúnaðinn sem tengdur er við
vatnsveitu ef vatn hefur ekki verið tekið úr
í 5 daga.
– Geymið hrátt kjöt og fisk í viðeigandi
ílátum í tækinu þannig að komist ekki í
snertingu við annan mat né leki á hann.
– Tveggja stjörnu hólf fyrir frosin matvæli
henta til að geyma fryst matvæli, geyma
eða búa til rjómaís og ísmola.
– Frystið ekki fersk matvæli í hólfum með
einni, tveimur eða þrem stjörnum.
– Ef ísskápurinn er hafður tómur í langan
tíma, slökkvið þá, afþíðið, hreinsið, þurrkið
og skiljið hurðina eftir opna til að koma í
veg fyrir að mygla myndist innan í tækinu.
UPPSETNING
A.m.k. tveir aðilar eiga að meðhöndla
tækið og setja það upp vegna hættu á
meiðslum. Notið hlífðarhanska við að taka
úr pakkningum og setja upp - hætta á því
að skerast.
Aðeins hæfur tæknimaður má sjá um
uppsetningu tækisins, þ.m.t. vatnsinntak
(ef til staðar), raftengingar og viðgerðir.
Gerið ekki við eða skiptið út neinum
hluta tækisins nema það sé sérstaklega
tekið fram í notendahandbókinni. Haldið
börnum frá uppsetningarstaðnum. Þegar
umbúðir hafa verið teknar utan af tækinu
skal ganga úr skugga um að það hafi ekki
skemmst við flutningana. Ef vandamál
koma upp skal hafa samband við næsta
þjónustuaðila. Eftir uppsetningu skal
geyma pökkunarúrgang (plast, frauðplast
o.s.frv.) fjarri börnum - hætta á köfnun.
Áður en uppsetning á sér stað verður að
tryggja að helluborðið sé ekki tengt við
rafveitu vegna hættu á raflosti.
Á meðan uppsetning á sér stað skal
tryggja að helluborðið skemmi ekki
rafsnúrur vegna eldhættu eða hættu
á raflosti. Ekki gangsetja tækið fyrr en
uppsetningu er lokið.
Gætið þess að skemma ekki gólf (t.d.
parketgólf) þegar tækið er fært til. Setjið
tækið á gólf sem er nógu sterkt til að þola
þyngd þess og á stað sem hentar notkun
og stærð tækisins. Tryggið að tækið sé ekki
nærri hitagjafa og að fæturnir fjórir séu
stöðugir og hvíli á gólfinu. Stillið þá eftir
þörfum og tryggið að tækið sé fullkomlega
afrétt með hallamæli. Bíðið í a.m.k. tvær
klukkustundir áður en kveikt er á tækinu til
að tryggja að kælirásin virki sem skyldi.
VIÐVÖRUN: Gangið úr skugga um
að rafmagnssnúran klemmist ekki eða
skemmist þegar verið er að staðsetja
tækið.
VIÐVÖRUN: Til að forðast hættu vegna
óstöðugleika skal koma tækinu fyrir eða
festa það samkvæmt leiðbeiningum
71

Quicklinks ausblenden:

Werbung

Inhaltsverzeichnis
loading

Diese Anleitung auch für:

HuttraFrysa

Inhaltsverzeichnis